Til baka
Hammershøi Christmas línan frá Kähler sameinar klassíska hönnun og fallegar jólahefðir. Þessi heillandi jólaálfapabbi er úr hvítu postulíni með einkennandi Hammershøi-rákum og fallegum handmáluðum jólaskreytingum. Hann er með rauða jólaálfahúfu, gyllta hnappa og trompet á bakinu. Falleg jólaskreyting sem skapar hlýlega og notalega stemningu á heimilinu.
Hönnun: Hans-Christian Bauer og Rikke Jacobsen.
Hæð: 6cm