Til baka

Jólahefðir og vandað handverk mætast á fallegan hátt í Hammershøi Christmas línunni frá Kähler. Jólasveinninn er 10 cm á hæð og ber einkennandi rákir Hammershøi-línunnar ásamt handmáluðum jólamynstrum.


Jólasveinninn er skreyttur grenigrein, lukt, bjöllum og litlum piparkökukarli og ber á bakinu gjafapoka sem jafnframt er kertastjaki fyrir mjótt kerti. Að sjálfsögðu skartar hann einnig klassískri rauðri jólasveinahúfu. Mynstrin eru hönnuð og handmáluð með vatnslitum af listakonunni Rikke Jacobsen og síðan færð yfir á snjóhvítt postulínið með sérstakri tækni.


Heillandi dönsk hönnun sem færir hlýlega jólastemningu á matarborðið, í gluggann eða á hillu. Skemmtilegt smáatriði er að hægt er að þræða borða eða merkispjald í gegnum opin við olnboga jólasveinsins – tilvalið fyrir fallega og persónulega jólaskreytingu.

HAMMERSH. JÓLAKERTAST. JÓLASV.

rod50278

5.950 kr.

1

Setja á gjafalista

Um vöruna

Sendingar & skil