Um okkur

Líf & List hefur verið staðsett í Smáralind síðan árið 2002. Við erum með gríðarlega mikið úrval af gjafa- og heimilisvörum frá mörgum stærstu framleiðendum heims.

Í verslun okkar bjóðum við nú upp á yfir 10.000 mismunandi vörur á breiðu verðbili.

Hjá okkur finnur þú allt fyrir eldhússtörfin, svo sem potta, pönnur, eldhúsáhöld, bökunarvörur og minni rafmagnstæki. Borðbúnað til hversdags- og spari nota. Þá bjóðum við einnig uppá gjafavörur í miklu úrvali, bæði frá þekktum hönnuðum og svo má alltaf finna eitthvað skemmtilegt á hagstæðu verði. Árið 2010 opnuðum og nú má finna yfir 8.000 vörur í vefversluninni okkar og það bætist við í úrvalið nánast daglega.

Skilmálar

Sending og kostnaður

Hægt er að velja úr fjórum sendingarmöguleikum en pantanir má sækja í verslun okkar í Smáralind, auk þess sem við sendum í Póstbox, á Pósthús og heim á þeim svæðum þar sem heimkeyrsla er í boði. Við reynum að afgreiða allar pantanir samdægurs eða næsta virka dag en það kann þó að gerast að afgreiðslutími lengist, t.d. á tilboðsdögum og í kringum jólin. Viðskiptavinir sem velja að sækja pöntun fá send SMS skilaboð þegar pöntun þeirra er tilbúin til afgreiðslu. Viðskiptavinir sem velja að fá sent fá sendan tölvupóst með sendingarnúmeri þegar sendingin fer frá okkur.

Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.

Greiðsla

Mögulegt er að greiða fyrir vörukaup með kortum (Mastercard og Visa). Greiðslan fer fram í gegnum örugga afgreiðslu Valitor ehf.

Ábyrgð

Ábyrgðarskilmálar eru samkvæmt íslenskum neytendalögum.

Öll verð eru birt með fyrirvara um villur og áskilur Líf & List sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp.

Skilafrestur – skiptiréttur

Skilaréttur á vörum er 14 dagar. skv. lögum nr. 46/2000. Óski viðskiptavinur eftir að skila vörum er honum bent að hafa samband við Líf & List ehf. í netfangið smaralind@lifoglist.is og óska eftir endurgreiðslu á vörukaupum. Líf & List endurgreiðir vörukaup af vefsíðu félagsins við fyrsta tækifæri, en í síðasta lagi 30 dögum eftir að ósk um endurgreiðslu berst.

Hægt er að skila og skipta öllum vörum svo lengi sem þær eru ennþá í vöruúrvali okkar, en því aðeins ef varan er ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Kaupandi greiðir sjálfur flutningskostnað fyrir vörur sem er skipt/skilað. Ekki er tekið við skilavörum séu þær sendar með póstkröfu. Útsöluvörum fæst hvorki skilað né skipt.

Upplýsingar um þjónustuveitanda

Nafn: Líf og List ehf. Heimilisfang: Hagasmári 1, 201 Kópavogur Kennitala. 670901-3510 Vsk. númer: 76470 Félagið er skráð hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra.

Fyrirtækjagjafir

Gjöfunum er ætlað að gleðja starfsmenn, viðskiptafélaga og aðra tengda. Við hjá Líf & List höfum mikla þekkingu og reynslu á þessu sviði og munum leggja okkur fram um að koma með hugmyndaríkar tillögur svo þú getir fundið réttu gjöfina fyrir þitt fyrirtæki. Eins og sjá má á síðunni, þá seljum við vörur frá flestum stóru hönnuðunum í heimilisvöru í Danmörku - auk þess sem við höfum í úrvali okkar ýmislegt spennandi sem kemur á óvart. Þess fyrir utan bjóðum við einnig upp á fría innpökkun í fallegan jólapappír auk heimsendingar á starfsstöð viðskiptavinar. Þá ber einnig að nefna að fyrirtækjagjöfum er hægt að skipta í verslun okkar í Smáralind.

Til að fá frekari upplýsingar um fyrirtækjagjafir má senda tölvupóst á netfangið pantanir@lifoglist.is

Vefkökur

Velkomin í vefverslun Líf&List. Síðan notar vafrakökur (e. Cookies). Með því að halda áfram notkun síðunnar samþykkir þú notkun vafrakaka.