Til baka
Töfrandi jólastemning og klassísk dönsk hönnun mætast í Hammershøi Christmas línunni frá Kähler.
Aðventukertastjakinn fyrir árið 2026 er skreyttur fallegum jólamyndum úr dýraríkinu, hönnuðum af listakonunni Rikke Jacobsen, sem færir hefðbundinni Hammershøi hönnun nútímalegan og hátíðlegan blæ.
Kertastjakinn er úr gljáðu postulíni og ber einkennandi rákir Hammershøi-línunnar sem hönnuð er af Hans-Christian Bauer. Fallegar vatnslitamyndir Rikke Jacobsen eru færðar yfir á postulínið af mikilli nákvæmni og skapa hlýlega og notalega jólastemningu.
Aðventukertastjakinn er tilvalinn sem miðpunktur jólaskreytinga og passar fullkomlega við aðrar vörur úr Hammershøi Christmas línunni.
Kertastjakinn er 21,5 cm í þvermál.
Þurrkið af með rökum klút.