Til baka
Áhugamenn um viskídrykkju nota gjarnan steina til að halda drykknum sínum köldum.
Steinarnir eru settir í frysti og eru síðan settir ískaldir út í glasið áður en drykknum er hellt í það. Þannig helst drykkurinn kaldur og þynnist ekki út með vatni, líkt og þegar ísmolar eru notaðir.
Að sjálfsögðu fylgir með nettur poki til að geyma steinana í þegar þeir eru í frystinum.