Til baka

TNS serían frá Le Creuset hefur um árabil verið ein af okkar allra vinsælustu potta- og pönnuseríum. Pannan er einkar harðgerð og er með vandaðri viðloðunarfrírri húðun sem þolir öll almenn eldhúsáhöld úr hvaða efni sem er (varist þó að skera með hníf í kjöt). Húðunin er eiturefnafrí.

TNS serían er gerð úr ryðbrynjuðu áli (e. hard anodizing), þ.e. að pannan hefur hlotið meðhöndlun sem býr til keramikhúðun yfir álið sem ver það frá utanaðkomandi efnum. Þá er viðloðunarfría húðunin á pönnu það sterk að framleiðandi veitir lífstíðarábyrgð á húðuninni við rétta notkun.

Við mælum alltaf með því að lesa leiðbeiningar sem fylgja pottum og pönnum svo varan endist sem lengst. Álið í pönnunni veitir afbragðs hitaleiðni, svo pannan er fljót að hitna og hitnar vel án þess að maturinn festist á henni. Gætið þess ávallt að hita pönnur hægt upp og gefa þeim tíma til að kólna. Besta steikingin með álpönnum fæst með því að notast við miðlungshita.

Pannan má fara í uppþvottavél, frysti og bakaraofn (allt að 400°C). Hægt er að kaupa glerlok frá Le Creuset sem passar á pönnurnar.

Pannan er 30cm í þvermál og 9 cm á hæð.

TNS WOK PANNA - 30 CM

lec55376

Vörumerki: Le Creuset

Flokkar:Wok pönnurTNS


38.350 kr.

1

Setja á gjafalista

Um vöruna

Sendingar & skil

Vefkökur

Velkomin í vefverslun Líf&List. Síðan notar vafrakökur (e. Cookies). Með því að halda áfram notkun síðunnar samþykkir þú notkun vafrakaka.