Til baka

TNS serían frá Le Creuset hefur um árabil verið ein af okkar allra vinsælustu potta- og pönnuseríum. Potturinn er einkar harðgerður og er með vandaðri viðloðunarfrírri húðun sem þolir öll almenn eldhúsáhöld úr hvaða efni sem er (varist þó að skera með hníf í kjöt). Húðunin er eiturefnafrí.

TNS serían er gerð úr ryðbrynjuðu áli (e. hard anodizing), þ.e. að potturinn hefur hlotið meðhöndlun sem býr til keramikhúðun yfir álið sem ver það frá utanaðkomandi efnum. Þá er viðloðunarfría húðunin á pottinum það sterk að framleiðandi veitir lífstíðarábyrgð á húðuninni við rétta notkun. 

Við mælum alltaf með því að lesa leiðbeiningar sem fylgja pottum og pönnum svo varan endist sem lengst. 

Álið í pottinum veitir afbragðs hitaleiðni, svo potturinn er fljótur að hitna og hitnar vel án þess að maturinn festist. Gætið þess ávallt að hita potta og pönnur hægt upp og gefa þeim tíma til að kólna og gætið þess að nota ekki hærri hita en miðlungshita. Potturinn má fara í uppþvottavél, frysti og bakaraofn (allt að 400°C).

Rúmmál: 3,8L, þvermál: 20 cm.

TNS SKAFTPOTTUR - 20 CM

lec55378

Vörumerki: Le Creuset

Flokkar:TNSSkaftpottar


36.250 kr.

1

Setja á gjafalista

Um vöruna

Sendingar & skil

Vefkökur

Velkomin í vefverslun Líf&List. Síðan notar vafrakökur (e. Cookies). Með því að halda áfram notkun síðunnar samþykkir þú notkun vafrakaka.