Til baka

Þetta steikarfat er úr Classic línunni frá danska framleiðandanum Scanpan.

Pakkinn inniheldur bæði steikarfat og grillgrind sem passar ofan í fatið.  Með því að nota grindina, þá lyftiru matnum örlítið frá botninum og þannig nær heitt loftið að elda matinn neðanfrá einnig.  Þannig verður útkoman stökk og góð húð allan hringinn.

Steikarfatið má að sjálfsögðu fara í ofn, en það passar einnig á allar gerðir helluborða að spanhellum undanskildum.  Fatið er úr áli sem virkar ekki á spanhellum.  Álið er bæði létt og leiðir hita hratt.  Þá er eiturefnalaus viðloðunarfrí húðun á fatinu svo auðvelt er að vaska það upp.

Má fara í uppþvottavél.

Efni: Ál (grind úr stáli)
Stærð: 39x27cm
Rúmmál: 5L

STEIKARFAT - CLASSIC 39X27CM

sca55132

Vörumerki: Scanpan

Flokkur:Steikarföt


26.980 kr.

1

Setja á gjafalista

Um vöruna

Sendingar & skil

Vefkökur

Velkomin í vefverslun Líf&List. Síðan notar vafrakökur (e. Cookies). Með því að halda áfram notkun síðunnar samþykkir þú notkun vafrakaka.