Til baka
Eva Trio Multi 5-ply steikarpönnurnar eru með stálbotni og eru hannaðar sérstaklega fyrir steikingu við háan hita. Það getur tekið smá tíma að ná tökum á réttri steikingartækni, en árangurinn er vel þess virði. Stályfirborðið er auðvelt í umhirðu, hentar fyrir fjölbreytta matreiðslu og getur enst ævilangt með réttri notkun og umhirðu.
Pannan er framleidd úr 90% endurunnu ryðfríu stáli og 100% endurunnu áli.
Snjöll fimm laga Multi-layer 5-ply uppbygging úr ryðfríu stáli og áli sameinar bestu eiginleika beggja efnanna, álið tryggir hraða og jafna hitadreifingu en stálið veitir vörn gegn sliti og tæringu.
Óhætt er að nota málmáhöld á pönnuna og hún hentar á allar gerðir helluborða. Hún þarf nánast ekkert viðhald og má þvo hana í uppþvottavél. Einnig má þrífa hana með stálull eftir þörfum.
Hönnunin byggir á klassískri Ole Palsby/Eva Trio hönnun frá árinu 1977. Þannig heldur pannan þeim notendavænu eiginleikum sem einkenna Eva Trio, svo sem handföngum sem haldast köld og hellistút. Einnig er hægt að stafla pönnunum og nota sömu lok á hana og aðrar vörulínur frá Eva Trio.
10 ára ábyrgð á því að pannan verpist ekki.