Til baka
#414 skenkurinn frá danska húsgagnaframleiðandanum Skovby sameinar fágaða hönnun, vandað handverk og gott geymslupláss. Skenkurinn tilheyrir Curve-línunni og einkennist af mjúklega sveigðum hurðum.. Hrein og fáguð lína skenksins gefur honum létt og glæsilegt yfirbragð sem fellur vel að nútímalegum jafnt sem klassískum heimilum.
Á bak við fjórar hurðirnar er rúmgott geymslurými með fimm hillum, auk tveggja skúffa með mjúkri lokun sem gera skenkinn bæði hagnýtan og þægilegan í notkun. #414 er tilvalinn í stofuna eða borðstofuna þar sem falleg hönnun og góð nýting rýmis fara saman.
Dönskhönnun frá Skovby, hönnuð af Per Haansbæk.
Hluti af Curve-húsgagnalínunni.
Fjórar hurðir með mjúklega sveigðri framhlið.
Fimm stuttar hillur og tvær skúffur með mjúkri lokun.
Fáanlegur í mismunandi viðartegundum.
Mál
Breidd: 197 cm
Dýpt: 46 cm
Hæð: 80 cm
