Til baka
Skálasettið inniheldur þrjár skálar í vinsælustu stærðunum frá Rosti Mepal, 1,5L, 2,0L og 3,0L. Með settinu koma þrjú lok svo hægt sé að geyma matvæli í skálinni í ísskáp. Margarethe skálarnar eru sérstaklega gagnlegar til eldamennsku, en einnig er hægt að bera fram mat í skálunum og nota þær til að geyma matvæli.
Skálarnar eru úr melamíni, sem hentar vel til matargerðar.
Margarethe skálarnar voru hannaðar af Acton Bjørns og Sigvard Bernadottes og eru þær nefndar eftir dönsku prinsessunni Margarethe. Skálarnar mega fara í uppþvottavél, en ekki er mælt með því að þær séu settar í örbylgjuofn eða frysti.