Til baka

Nordic Kitchen hnífarnir frá Eva Solo byggja á 2000 ára gamalli japanskri hnífahefð.
Hnífarnir eru gerðir af færum hnífagerðarmönnum sem hafa lagt 66 lög af damaskusstáli utan um grunnlagið og útkoman er þessi vandaði og fallegi 67 laga hnífur. Þessi aðferð, að bæta lögum af stáli utan á hvort annað, er talin eiga uppruna sinn við gerð Samurai sverða áður fyrr. Útkoman er beittara og harðara hnífsblað - hnífur með framúrskarandi jafnvægi í höndinni.

Handfangið er gert úr Pakkawood við, sem er sambland af við og plastefni sem gefur framúrskarandi endingu og grip.

Þessi hnífur er Santoku hnífurinn í seríunni. Santoku hnífar má greina frá rifflunum í hnífsblaðinu, en tilgangurinn með þeim er að það myndist loft á milli hnífsblaðsins og hráefnisins þegar verið er að skera hráefnið. Með þeim hætti, þá loðir það síður við blaðið og auðveldara verður fyrir kokkinn að sneiða það.

Blaðið er 18 cm langt.

NORDIC KITCHEN - SANTOKUHNÍFUR

eva34903

Vörumerki: Eva Solo

Flokkur:Nordic Kitchen


34.230 kr.

1

Setja á gjafalista

Um vöruna

Sendingar & skil

Vefkökur

Velkomin í vefverslun Líf&List. Síðan notar vafrakökur (e. Cookies). Með því að halda áfram notkun síðunnar samþykkir þú notkun vafrakaka.