Til baka
Þetta fallega matarstell frá Lyngby Porcelæn byggir á mynstrinu sem prýddi hið vinsæla Danild stell sem kom út árið 1961.  Rhombe stellið er handgert og er skreytt fallegu mynstri sem Danir kalla Rhombe.  Stellið er í senn ákaflega fallegt og stílhreint.  Mjóar línur og krítarhvítt postulínið sameinast í fallegu stelli sem nota má hvort tveggja fyrir hversdagsleg eða fínni tilefni.
Þessir eggjabikarar eru 5cm á hæð.
Stellið má fara í uppþvottavél.