Til baka

Kupu er vandaður optískur reykskynjari og er hannaður af finnska hönnuðinum Harri Koskinen fyrir Jalo Helsinki. Kupu eykur ekki aðeins öryggið heima hjá þér heldur getur þú einnig notið fallegrar hönnunar. Flestir reykskynjarar á markaðnum eru flóknir í uppsetningu og ekki beint aðlaðandi í útliti. Aftur á móti er Kupu glæsilegur á að horfa og auðveldur í notkun og uppsetningu. Það tekur þig aðeins nokkrar sekúndur að festa Kupu í loft þökk sé sterku tvíhliða 3M límbandi á lokinu og því er óþarfi að bora og skrúfa. Allt yfirborðið á Kupu virkar sem einn hnappur fyrir allar aðgerðir, svo það eru engir litlir takkar, hvort sem það er að slökkva á fölskum viðvörunum eða til að prófa virkni reykskynjarans. Kupu er léttbyggður og kemur með rafhlöðum (9V) sem endast í u.þ.b. 5 ár. Þegar rafhlöður eru að tæmast heyrist hljóðmerki á 30 sekúnda fresti í minnst 30 daga. Kupu er fáanlegur í nokkrum litum og fékk hin eftirsóttu hönnunarverðlaun Red Dot Design Awards 2011 og Wallpaper Design Award 2012Framleiðandi: Jalo HelsinkiHönnuður: Harri Koskinen5 ára ábyrgð5 ára ending rafhlöðu (rafhlaða fylgir)Lengd 110 mm, breidd 110 mm, hæð 39 mm, þyngd 165 gEfni: Textíl kápaLitir: Hvítur, grár, bleikur, grænn og brúnnKjör hitastig 0-45°C, kjör rakastig 0-90%CE-merking EN14604:2005Handbók á íslensku fylgirKemur í fallegum gjafakassa

Reykskynjari - Kupu Hvítur

vor79901

Vörumerki: Jalo Helsinki

Flokkur:Reykskynjarar


7.990 kr.

1

Setja á gjafalista

Um vöruna

Sendingar & skil

Vefkökur

Velkomin í vefverslun Líf&List. Síðan notar vafrakökur (e. Cookies). Með því að halda áfram notkun síðunnar samþykkir þú notkun vafrakaka.