Til baka

Með Profi Plus línunni frá þýska framleiðandanum WMF eru þér allir vegir færir!

Profi Plus línan er hönnuð af fagmönnum og er mikið lagt í gæði og virkni vörunnar. Hvort sem þú ætlar að nota sleifina, pískinn eða flysjarann - þá er sérhvert áhald hannað svo að færustu fagmenn vilji nota það. Línan inniheldur 100 mismunandi áhöld í eldhúsið og auðvelt er að finna öll þau áhöld sem þig mögulega gæti vantað í matarundirbúninginn.

Öll áhöldin hafa sama yfirbragð, sem kemur vel út í nútímalegum eldhúsum. Þá eru öll áhöldin framleidd úr Cromargan® stáli, sem er afar vandað og má að sjálfsögðu fara í uppþvottavél. Að lokum er vert að nefna að öll áhöldin úr Profi Plus línunni eru með lykkju á endanum, svo hægt sé að hengja þau með krók á áhaldaslá, svo þau séu ávallt skammt undan.

Þessi ostaskeri er 25,5cm á lengd. Hægt er að fá aukavíra í hann, en þeir eru ekki fáanlegir í vefverslun. Leitið til sölufulltrúa í verslun (vörunr. SEB34702).

PROFI PLUS - VÍROSTASKERI

seb34701

Vörumerki: WMF

Flokkar:OstavörurEldhúsáhöld


4.550 kr.

1

Setja á gjafalista

Um vöruna

Sendingar & skil

Vefkökur

Velkomin í vefverslun Líf&List. Síðan notar vafrakökur (e. Cookies). Með því að halda áfram notkun síðunnar samþykkir þú notkun vafrakaka.