Til baka

Með kaupum á steypujárnspotti frá Le Creuset tryggir þú þér vöru með langa sögu og mikil gæði. Eftir áratuga reynslu hefur það sýnt sig að fáir pottar komast með tærnar þar sem steypujárn hefur hælana. Hitinn dreyfist mjög jafnt og gefur það því jafna og góða eldun. Hver einasti steypujárnspottur er einstakur, enda fer hver pottur um sig í gegnum hendur yfir 30 aðila áður en hann er sendur úr verksmiðjunni í Frakklandi. Pottana má nota á allar gerðir helluborða, þar með talið spanhelluborð. Þá má einig setja pottana í bakaraofn og á grill.  Steypujárnspotturinn þinn heldur hita mjög lengi eftir að slökkt er á helluborðinu, og þannig má spara orku. 

Balti potturinn frá Le Creuset á rætur sínar að rekja til Baltistan í Norður-Pakistan. Potturinn er því tilvalin fyrir alls konar karrýrétti, en leyfðu sköpunargleðinni að taka yfir, það er svo margt sem hægt er að búa til í honum. 

Steypujárnspottarnir frá Le Creuset koma í mörgum flottum litum, svo hægðarleikur ætti að vera að finna pott sem passar fallega við eldhúsið þitt. 

Le Creuset býður upp á lífstíðarábyrgð á allar steypujárnsvörur. 

Pottarnir mega fara í uppþvottavél, grill og frysti en ekki í örbylgjuofn. 

Þvermál: 24cm / 2,7 L

POTTUR BALTI 24CM - SV.ARTUR MATTUR

lec55488

31.990 kr.

1

Setja á gjafalista

Um vöruna

Sendingar & skil

Vefkökur

Velkomin í vefverslun Líf&List. Síðan notar vafrakökur (e. Cookies). Með því að halda áfram notkun síðunnar samþykkir þú notkun vafrakaka.