Til baka

Með kaupum á steypujárnspotti frá Le Creuset tryggir þú þér vandaða vöru með langa sögu. Le Creuset fagnaði 100 ára afmæli árið 2025 og eftir áratuga reynslu hefur það sýnt sig að fáar gerðir potta komast með tærnar þar sem steypujárn hefur hælana. Hitinn dreifist jafnt og gefur það jafna og góða eldun. Hver einasti steypujárnspottur er handgerður og fer hver pottur í gegnum hendur yfir þrjátíu aðila áður en hann er sendur úr verksmiðjunni í Frakklandi.

Pottana má nota á allar gerðir helluborða, þar með talið spanhelluborð. Þá má einnig setja pottana í bakaraofn og á grill en gæta skal að hitinn fari ekki yfir 260°C. Steypujárnspotturinn þinn heldur hita lengi eftir eldun og þannig má spara orku.


Möguleikarnir í eldhúsinu eru endalausir en þú getur eldað t.d. súpur, kjötrétti, heilan kjúkling, risotto og pastarétti. Potturinn er einnig tilvalinn fyrir hægeldun og einnig má baka brauð og kökur í honum. 


Steypujárnspottarnir frá Le Creuset koma í mörgum fallegum litum, svo hægðarleikur ætti að vera að finna pott sem passar fallega við eldhúsið þitt.

Le Creuset býður upp á lífstíðarábyrgð á allar steypujárnsvörur, þó með þeim fyrirvara að þær séu notaðar samkvæmt leiðbeiningum sem fylgja.

Pottarnir mega fara í uppþvottavél og frysti en ekki í örbylgjuofn.

Þvermál: 24 cm

Rúmmál: 4,2L

Efni: Emalerað steypujárn

Þyngd: 4,31 kg.

Hámarkshiti: 260°C. 

 

  • Fyrir notkun skal fjarlægja allar umbúðir og merkingar. Þvoið pottinn í heitu sápuvatni, skolið og þerrið vandlega.
  • Miðlungs eða lágur hiti gefur bestu niðurstöðuna við matreiðslu, þar á meðal steikingu.
  • Mælt er með að nota sílíkonáhöld frá Le Creuset eða áhöld úr tré eða hitaþolnu plasti. Ekki skal nota stáláhöld sem geta rispað glerunginn á pottinum.
  • Nota skal hellu af viðeigandi stærð fyrir jafna eldun og betri niðurstöðu.
  • Emelerað steypujárn er ekki hentugt fyrir þurrsteikingu, ráðlagt er að nota jurtaolíu, repjuolíu eða sólblómaolíu.
  • Ekki er mælt með því að draga pottinn yfir glerflöt. Lyftið honum frá helluborðinu til að færa hann til, til að koma í veg fyrir skemmdir.
  • Notið alltaf ofnhanska eða pottaleppa þegar þið meðhöndlið heitar vörur.
  • Látið pottinn kólna áður en hann er þveginn. Ef potturinn er þveginn á meðan hann er heitur getur það valdið hitasjokki sem getur leitt til sprungna í glerungnum.
  • Potturinn má fara í uppþvottavél en þó er mælt með handþvotti.

 

Mál án umbúða:

  • L: 29,6 cm
  • B: 31,4 cm
  • H: 13,8 cm

Mál með umbúðum:

  • L: 32,5 cm
  • B: 25,2 cm
  • H: 16,6 cm

 

 

 

SIGNATURE STEYPUJÁRNSPOTTUR 24 CM - SHELL PINK

lec55125

Vörumerki: Le Creuset

Flokkur:Pottar - 24 cm


56.990 kr.

1

Setja á gjafalista

Um vöruna

Sendingar & skil

Myndband

Vefkökur

Velkomin í vefverslun Líf&List. Síðan notar vafrakökur (e. Cookies). Með því að halda áfram notkun síðunnar samþykkir þú notkun vafrakaka.