Til baka

Fyrirferðarlítill, nýstárlegur og litríkur pizzaofn, tilvalinn til að búa til dýrindis heimabakaðar pizzur!


Lögun ofnsins var hönnuð til að tryggja bestu matreiðsluupplifunina. Mikill kostur er að steini ofnsins er hægt að snúa með flipa framan á, sem gerir þér kleift að elda pizzuna þína fullkomnlega án þess að taka hana úr ofninum, sem gerir eldamennskuna einfalda og skemmtilega. Pizzan þín verður elduð á innan við mínútu. Frábær viðbót í pizzapartýið.


Piana pizzaofninn skal nota með ætum viðarkögglum sem bjóða upp á framúrskarandi hitun. Þeir eru fáanlegir hjá okkur.

Þessi fallegi pizzaofn er öflugur, kraftmikill og hlutlaus, en á sama tíma með skemmtilegan karakter. Piana pizzaofninn er fáanlegur svartur, mintugrænn, terracotta rauður og grár.

Kostir Piana pizzaofnsins:

  • Hann er fyrirferðarlítill og nýstárlegur.
  • Er með snúningsstein sem einfaldar eldamennskuna til muna. Þetta tryggir jafna eldun og er Piana pizzaofninn eini pizzaofninn með innbyggðum snúningssteini.
  • Hitnar á innan við 15 mínútum.
  • Kemur með innbyggðum hitamæli
  • Eldar pítsuna á innan við 60 sekúndum.
  • Fæturnir eru samanbrjótanlegir.


Eiginleikar:

  • Hurð: Ofninn er með hurð sem gerir þér kleift að hámarka hitunartíma ofnsins. Einnig er hægt að nota ofninn án hurðarinnar.
  • Eldsneyti: Ofninn má nota með viðarkubbum og kögglum og gefur það afar gott bragð. Notaðu lúguna fyrir ofan hurðina til þess að fylla á eldsneytið á meðan ofninn er í notkun.
  • Innbyggður hitamælir: Vel heppnuð pizza er pizza sem er elduð fullkomnlega. Þökk sé innbyggða hitamælinum getur þú auðveldlega fylgst með hitastigi ofnsins. Það tekur um 15 mínútur til að ná réttu eldunarhitastigi, 400°C.
  • Samanbrjótanlegir fætur svo auðvelt er að ganga frá ofninum og sparar pláss.


Hvað er í kassanum?

  • Pizzaofn
  • Innbyggður hitamæir
  • Stálhurð
  • Strompur
  • Eldsneytisskúffa
  • Hringlaga pizzasteinn
  • Logaskeri (e. Flame cutter)
  • Notkunarleiðbeiningar

Mál: 73 x 40 x 72,5 cm

Þyngd: 10 kg 

PIZZAOFN PIANA - SVARTUR

zip71301

Vörumerki: Ziipa

Flokkur:Pizzaofnar


56.950 kr.

1

Setja á gjafalista

Um vöruna

Sendingar & skil

Vefkökur

Velkomin í vefverslun Líf&List. Síðan notar vafrakökur (e. Cookies). Með því að halda áfram notkun síðunnar samþykkir þú notkun vafrakaka.