Til baka
Með kaupum á steypujárnspönnu frá Le Creuset tryggir þú þér vöru með langa sögu og mikil gæði. Eftir áratuga reynslu hefur það sýnt sig að fáar pönnur komast með tærnar þar sem steypujárn hefur hælana.
Hitinn dreifist mjög jafnt og gefur það því jafna og góða eldun. Hver einasta steypujárnspanna er einstök, enda fer hver panna í gegnum hendur yfir 30 aðila áður en hún er send úr verksmiðjunni í Frakklandi. Pönnurnar má nota á allar gerðir helluborða, þar með talið spanhelluborð. Varist þó að draga pönnuna til á spanhelluborði.
Le Creuset býður upp á lífstíðarábyrgð á allar steypujárnsvörur, við rétta notkun. Mikilvægt er að lesa og fylgja þeim leiðbeiningum sem fylgja pönnunni. Pannan má fara í uppþvottavél, ofn og frysti, en ekki í örbylgjuofn.
Þvermál: 30 cm