Til baka

Með kaupum á steypujárnspönnu frá Le Creuset tryggir þú þér vöru með langa sögu og mikil gæði. Eftir áratuga reynslu hefur það sýnt sig að fáar pönnur komast með tærnar þar sem steypujárn hefur hælana.

Hitinn dreifist mjög jafnt og gefur það því jafna og góða eldun. Hver einasta steypujárnspanna er einstök, enda fer hver panna í gegnum hendur yfir 30 aðila áður en hún er send úr verksmiðjunni í Frakklandi. Pönnurnar má nota á allar gerðir helluborða, þar með talið spanhelluborð. Varist þó að draga pönnuna til á spanhelluborði. Pannan heldur hita mjög lengi eftir að slökkt er á helluborðinu, og þannig má spara orku.

Steypujárnspönnurnar frá Le Creuset koma í mörgum fallegum litum, svo hægðarleikur ætti að vera að finna pönnu sem passar fallega við eldhúsið þitt.

Le Creuset býður upp á lífstíðarábyrgð á allar steypujárnsvörur, við rétta notkun. Við mælum með því að lesa leiðbeiningarnar sem fylgja pönnunni vel. Pönnurnar mega fara í uppþvottavél og frysti en ekki í örbylgjuofn. Athugið að ekki er mælt með því að pannan sé sett inn í ofn eða á grill, þar sem handfangið er úr tré og getur brunnið við það.

Þvermál: 28 cm.

PANNA 28 CM - SEA SALT

lec55229

42.990 kr.

1

Setja á gjafalista

Um vöruna

Sendingar & skil

Vefkökur

Velkomin í vefverslun Líf&List. Síðan notar vafrakökur (e. Cookies). Með því að halda áfram notkun síðunnar samþykkir þú notkun vafrakaka.