Til baka

Múmínálfana kannast flestir við. Þessir skemmtilegu álfar hafa glatt unga sem aldna allt frá árinu 1945, er fyrsta bókin um Múmínaálfana eftir finnska rithöfundinn Tove Jansson kom út. Síðan þá hafa verið gefnar út fleiri bækur, myndabækur, sjónvarpsþættir og jafnvel kvikmynd með álfunum í aðalhlutverkunum.

Í  True To it's Origins seríunni er að finna krús, skál, disk, krukku og teketil. Myndskreytingin er að þessu sinni byggð á níundu og jafnframt síðustu sögu Tove Jansson um Múmínálfana, Múmíndalur í nóvember (1971). Sú saga er dapurlegri en fyrri bækur hennar en talið er að andlát móður Tove hafi haft áhrif á söguþráðinn, en hún lést sama ár og bókin var skrifuð. Sagan er frábrugðin fyrri bókum hennar því þar koma Múmínálfarnir ekki sjálfir við sögu. 

Arabia, dótturfélag Iittala í Finnlandi, hefur um árabil framleitt þessar skemmtilegu vörur með myndum af persónum Múmínálfanna.

Þvermál: 19 cm. 

Múmín diskur - True to its origins

iit10579

Vörumerki: Múmínálfarnir

Flokkur:Diskar


4.890 kr.

1

Setja á gjafalista

Um vöruna

Sendingar & skil

Vefkökur

Velkomin í vefverslun Líf&List. Síðan notar vafrakökur (e. Cookies). Með því að halda áfram notkun síðunnar samþykkir þú notkun vafrakaka.