Til baka

Múmínálfana kannast flestir við. Þessir skemmtilegu persónur hafa glatt unga sem aldna allt frá árinu 1945, er fyrsta bókin um Múmínaálfana eftir finnska rithöfundinn Tove Jansson kom út. Síðan þá hafa verið gefnar út fleiri bækur, myndabækur, sjónvarpsþættir og kvikmynd með álfunum í aðalhlutverkunum.

Þessi fallega sería af Fillífjónku er hönnuð af Tove Slotte en hún byggir hönnun sína á bók Tove Jansson "Múmíndalur í Nóvember (1970)". Fillífjónka er þriggja barna móðir, sem hefur ótrúlegan hæfileika til að finna ryk og óhreinindi sem hún nýtir fyrsta tækifæri til þess að þrífa.

Á hverju ári koma út nýjar könnur auk fleiri kanna sem einungis eru framleiddar í takmörkuðu upplagi. Hér er því um skemmtilega söfnunarvöru að ræða.

Arabia, dótturfélag Iittala í Finnlandi, hefur um árabil selt þessar skemmtilegu vörur með myndum af persónum Múmínálfanna.

Einnig er hægt að fá skálar og diska úr þessari línu.

Rúmmál: 30 cl. 

Múmín bolli - Fillífjónka

iit11984

3.790 kr.

1

Setja á gjafalista

Um vöruna

Sendingar & skil

Vefkökur

Velkomin í vefverslun Líf&List. Síðan notar vafrakökur (e. Cookies). Með því að halda áfram notkun síðunnar samþykkir þú notkun vafrakaka.