Til baka
Haltu drykkjunum þínum heitum eða köldum með þessum skemmtilega Múmín hitabrúsa. Hann er léttur og auðveldur í flutningi, en á brúsanum er sílíkonhengi. Tilvalinn í skólann, vinnuna og í ræktina. Lokið er lekahelt og undir brúsanum er stamur botn.
"Holiday Rush" línan kom út sumarið 2026, en hún er byggð á myndasögunni Múmínálfarnir á Ríveríunni. Vörurnar í þessari línu eru fallega myndskreyttar íbúum Múmíndals að flýta sér að pakka ofan í tösku svo þeir missi ekki af fríinu. Myndasagan sjálf er svo byggð á fríi sem Tove Jansson fór í til Frakklands með móður sinni.
Rúmmál: 0,45 L.
Efni: Ryðfrítt stál.
Brúsinn þolir ekki að fara í uppþvottavél.