Til baka
Múmínálfana kannast flestir við. Þessir skemmtilegu persónur hafa glatt unga sem aldna allt frá árinu 1945, er fyrsta bókin um Múmínaálfana eftir finnska rithöfundinn Tove Jansson kom út. Síðan þá hafa verið gefnar út fleiri bækur, myndabækur, sjónvarpsþættir og kvikmynd með álfunum í aðalhlutverkunum.
Arabia, dótturfélag Iittala í Finnlandi, hefur um árabil selt þessar skemmtilegu vörur með myndum af persónum Múmínálfanna.
ABC múmínkrúsirnar eru prýddar fallegum stafamyndum úr ævintýraheimi Múmínálfanna.
Krúsirnar eru framleiddar í samstarfi við "From A - Z with Moomin" átakið sem var sett af stað til að vekja lestar- og ritgleði meðal barna, unglina og fullorðinna.
Þessar krúsir eru 40 cl. og því aðeins stærri en hinar hefðbundnu sem eru 30 cl.