Til baka

Nordic Kitchen hnífarnir frá Eva Solo byggja á 2000 ára gamalli japanskri hnífahefð. Hnífarnir eru gerðir af færum hnífagerðarmönnum sem hafa lagt 66 lög af damaskusstáli utan um grunnlagið og útkoman er þessi vandaði og fallegi 67 laga hnífur. Þessi aðferð, að bæta lögum af stáli utan á hvort annað, er talin eiga uppruna sinn við gerð Samurai sverða áður fyrr.

Útkoman er beittara og harðara hnífsblað - hnífur með framúrskarandi jafnvægi í höndinni.

Handfangið er gert úr Pakkawood við, sem er sambland af við og plastefni sem gefur framúrskarandi endingu og grip.

Þetta er kokkahnífurinn úr seríunni. Hann er með 20 cm löngu flugbeittu blaði og hentar vel fyrir allan skurð í eldhúsinu. Hvort sem þú ert að saxa niður grænmeti eða skera niður lambalærið, þá er þetta frábær hnífur í það verkefni.

NORDIC KITCHEN - KOKKAHNÍFUR

eva34904

Vörumerki: Eva Solo

Flokkur:Nordic Kitchen


38.790 kr.

1

Setja á gjafalista

Um vöruna

Sendingar & skil

Vefkökur

Velkomin í vefverslun Líf&List. Síðan notar vafrakökur (e. Cookies). Með því að halda áfram notkun síðunnar samþykkir þú notkun vafrakaka.