Til baka
Stílhrein og vönduð hitakanna úr Nordic Kitchen línunni sem heldur kaffi, tei eða vatni heitu frá fyrsta bolla til þess síðasta. Mjúkur sandliturinn og fallegar, mótaðar línur gefa könnunni tímalaust og fágað yfirbragð sem passar vel með leirvörum, gleri og viði.
Handfang úr eik með mjúkum, ávölum brúnum veitir þægilegt og öruggt grip. Tvöfalt stálinnlegg heldur hitanum vel og stútur úr ryðfríu stáli tryggir snyrtilega uppáhellingu án leka.
Kannan er auðveld í þrifum og passar fullkomlega með öðrum vörum úr Nordic Kitchen línunni.
Rúmmál: 1,0L Hæð: 20cm Þvermál: 18 x 13cm
Má ekki fara í uppþvottavél