Til baka
Hâws Santo BBQ er vandað grillsett fyrir þá sem vilja hafa réttu verkfærin við grillið. Settið inniheldur þrjú nauðsynleg grilláhöld – fyrirskurðarhníf, kjötgaffal og grilltöng – og kemur í fallegri rúllutösku sem auðveldar bæði geymslu og flutning.
Áhöldin eru úr ryðfríu stáli og með handföngum úr Pakkawood, sem gefur þeim fallegt og vandað útlit ásamt góðu gripi. Rúllutaskan er úr slitsterku leðurlíki og heldur áhöldunum snyrtilega saman þegar þau eru ekki í notkun.
Settið hentar sérstaklega vel fyrir grilláhugafólk og er einnig skemmtileg gjöf fyrir þann sem hefur gaman af grillun.
Hnífur: 33 cm
Kjötgaffall: 32 cm
Grilltöng: 30 cm
Rúllutaska: Leðurlíki