Til baka
Ef þú ert að leita þér að vönduðum hnífum í eldhúsið, þá er þetta frábæra hnífasett frá Global einfaldlega það sem þú ert að leita að.
Settið inniheldur þrjá hnífa:
- G-2 er margverðlaunaður 20cm hnífur frá Global. G-2 er einkum notaður þegar ætlunin er að skera stórar og þykk kjötstykki, t.d. sunnudagslærið.
- GS-5 er frábær hnífur með mjög þunnu blaði og hentar hann einkar vel til að skera ávexti og grænmeti niður í sneiðar. Hnífurinn er 14cm.
- GS-38 er minni hnífur með 9cm blaði og holu skafti. Þessi hnífur er mjög gagnlegur í fínni skurð í eldhúsinu.
Frábært hnífasett fyrir byrjendur sem og lengra komna.