Til baka

Gleðiskruddan er dagbók fyrir börn á aldrinum 6-15 ára sem byggir á hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði. Það er mikilvægt fyrir börn og ungmenni að hafa tækifæri til að efla sjálfsþekkingu sína sem hjálpar þeim um leið að takast á við verkefni og áskoranir daglegs lífs. Aðferðir innan jákvæðrar sálfræði geta stuðlað að persónulegum vexti og bjóða upp á möguleika fyrir einstaklinga að blómstra. Svokölluð jákvæð inngrip hafa reynst áhrifarík í því að viðhalda hamingju og öðrum jákvæðum tilfinningum ásamt því að minnka einkenni þunglyndis og kvíða

Dagbókin telur 100 daga þar sem jákvæða inngripið þrír góðir hlutir er í forgrunni. Þar skráir barnið niður þrjá góða hluti sem áttu sér stað þann daginn. Dögunum er skipt upp í 21 þemu; tilfinningarstyrkleikahamingjubjargráð við streitu og kvíðagróskuhugarfartrú á eigin getusjálfstalsjálfsvinsemdmarkmiðseiglusvefnhreyfinguútiverunúvitundöndunað njótaflæðiþakklætigóðvildbjartsýni og von. Hvert og eitt þessara þema er útskýrt á einfaldan hátt til að auðvelda skilning.
Á hverjum degi má einnig finna gleðimola eða gleðifræ dagsins sem tengist þemanu hverju sinni í formi hugleiðinga, tilvitnana, áskorana og æfinga.

Markmið Gleðskruddunnar er að efla sjálfsþekkingu, trú á eigin getu og þrautseigju, ásamt því að auka jákvæðar tilfinningarbjartsýni og vellíðan.  

Það er okkar von að Gleðiskruddan sái fræjum í huga barna og það sem hentar hverjum og einum nái að skjóta rótum, vaxi og dafni. Að verkfærin sem kynnt eru nýtist börnum í að takast á við þær áskoranir sem á vegi þeirra verða á sem uppbyggilegastan hátt.


Vinsamlegast athugið að útsöluvörum fæst hvorki skilað né skipt. 


-50%
Tilboð

GLEÐISKRUDDAN

bar49914

Vörumerki: Gleðiskruddan

Flokkur:Útsala


Uppselt

5.990 kr.

2.995 kr.

Setja á gjafalista

Um vöruna

Sendingar & skil

Vefkökur

Velkomin í vefverslun Líf&List. Síðan notar vafrakökur (e. Cookies). Með því að halda áfram notkun síðunnar samþykkir þú notkun vafrakaka.