Til baka

FOUR STAR er vinsælasta hnífaserían frá Zwilling á heimsvísu, en hún er sérstaklega þekkt fyrir öryggi og þægindi. Á lokastigum framleiðslu hnífanna, þá eru þeir slípaðir og settir saman í höndunum af fagmönnum með langa reynslu í hnífasmíði. Þökk sé vönduðum frágangi á mótum tanga og skafts, þá er afar þægilegt að vinna með hnífana í lengri tíma. Tanginn veitir hnífnum bæði fullkomið jafnvægi, en nýtist einnig sem fingraöryggi. Hnífarnir eru smíðaðir úr sérstakri stálblöndu sem hefur verið í yfir 280 ár í þróun hjá Zwilling. Þessi vandaða stálblanda fær svo einkaleyfisvarða FRIODUR hörðnunarmeðferð, sem tryggir að stáli sé hart svo hnífurinn haldist beittur í langan tíma. Hnífarnir eru afar vandaðir og stálið mun ekki fá á sig bletti eða kvarnast úr blaðinu. Handfangið er gert úr fjölprópýlen (e. polypropylen), sem er harðgert plastefni sem hvarfast ekki og heldur því upprunalegu útliti sínu. Hnífurinn er með 20cm löngu blaði en gaffallinn er 18cm frá skafti. Framleitt í Þýskalandi.

FYRIRSKURÐARSETT - FOUR STAR

zwi34145

39.950 kr.

1

Setja á gjafalista

Um vöruna

Sendingar & skil

Vefkökur

Velkomin í vefverslun Líf&List. Síðan notar vafrakökur (e. Cookies). Með því að halda áfram notkun síðunnar samþykkir þú notkun vafrakaka.