Til baka

Það var árið 1970 að Sigurður Már Helgason hannaði og smíðaði fyrsta Fuzzy stólinn, lítinn koll með sútaðri lambsgæru með ullinni eins og hún kemur af kindinni.  Fætur eru renndir í líki vatnsdropa. Hver og einn Fuzzy kollur er einstakur þar sem enginn er nákvæmlega eins.

Hönnun á umbúðum þóttu strax vel úr garði gerðar og fengu t.a.m. umbúðaverðlaun Samtaka Iðnaðarins árið 1972. Stefnan var síðan tekin á það að koma gærukollinum á framfæri á Keflavíkurflugvelli og þar sá Sigurður Már fyrir að það hentaði útlendingum að grípa handhægan kassa með sér í millilendingum og á leið úr landi. 

Fuzzy varð vinsæl fermingagjöf og þótti tilvalin í gjafir við útskrift og önnur tækifæri. Fuzzy kollurinn er algerlega tímalaus hönnun sem á inni allsstaðar fyrir einstakt útlit og flott yfirbragð. 

Litli íslenski gærukollurinn hefur fjóra ávala og sterka viðarfætur. Setan er bólstruð með ekta íslenskri gæru. Hægt er að fá Fuzzy í hvítu, svörtu, hrafnsvörtu, dökkgráu, ljósgráu, flekkóttu, dökkmórauðu og ljósmórauðu.

Fuzzy kemur í sérhönnuðum kassa af stærð 40 x 37 x 14 cm og heildarþyngd er 3 kg.  Kassinn hentar vel til sendinga innanlands og utan.

Fuzzy - Hvítur

fuz2410

Uppselt

79.240 kr.

Setja á gjafalista

Um vöruna

Sendingar & skil

Vefkökur

Velkomin í vefverslun Líf&List. Síðan notar vafrakökur (e. Cookies). Með því að halda áfram notkun síðunnar samþykkir þú notkun vafrakaka.