Til baka
Flow serían frá Georg Jensen sameinar skúlptúr og notagildi í einstakri hönnun. Vasarnir eru mótaðir með mjúkum, lífrænum línum sem gefa þeim létt og flæðandi yfirbragð og skapa fallegan grunn fyrir blóm og greinar.
Hönnunin gerir það að verkum að vasarnir njóta sín ekki aðeins með blómum heldur eru þeir einnig fallegir sem sjálfstæðir skrautmunir. Þetta er eitt af því sem einkennir vöruhönnun Georg Jensen – formið sjálft verður hluti af heimilinu, jafnvel þegar vasinn er tómur.
Flow-serían hentar bæði fyrir einfaldan blómvönd og fyrir meira áberandi blómaskreytingar og er falleg á matarborði, stofuborði eða hillu.
Georg Jensen hefur frá árinu 1904 sameinað skandinavíska hönnun, handverk og áherslu á vandað form og efnisval