Til baka
Bodum Ferðakaffipressa 350ml
Njóttu uppáhaldskaffisins hvar og hvenær sem er með ferðakaffipressu frá danska merkinu Bodum. Þessi snjalla lausn sameinar franska kaffikönnu og einangraðan ferðabolla í einni vöru.
Tvöfaldur ryðfrír stálveggur heldur kaffinu heitu lengur, á meðan sílikonhúð tryggir gott og öruggt grip. Hentar bæði fyrir kaffi og laust te og er fullkomin á leið í vinnu, í ferðalög eða útilegur.
Helstu eiginleikar
- Ferðakaffipressa og hitabrúsi í einu
- Tvöfaldur, einangraður ryðfrír stálveggur
- Heldur drykknum heitum í allt að 2 klukkustundir
- Stöðugur gúmmíbotn
Notkun
Bætið grófmöluðu kaffi í bollann, hellið heitu vatni yfir og látið standa í um 4 mínútur. Þrýstið síðan niður og njótið.
Umhirða
Hreinsið eftir hverja notkun. Allir hlutir meiga fara í uppþvottavél.