Til baka
Bordeaux-glasið er sérhannað fyrir meðal- til fullþroskuð rauðvín með miklum tanníni. Glasið er rúmgott og gefur ilmnum svigrúm til að opnast, mýkir beiskju og leggur áherslu á ávaxtakeim þannig að víninu tekst að ná betra jafnvægi.
Definition-línan sækir innblástur í hinar þekktu Willsberger- (1982) og Hybrid-línur (2011) og sameinar klassíska hönnun og nýjustu framleiðslutækni. Útkoman eru einstaklega þunn, létt og falleg vínglös hönnuð með það að markmiði að draga fram sérkenni, ilm og bragð hverrar víntegundar.
- 4 glös í pakka
- Þola uppþvottavél
- Úr kristalgleri