Til baka
Árið 2021 kom út sérstök hátíðarútgáfa af apanumí tilefni 70 ára afmæli hans. Hér er að sjá litla útgáfu af þeim apa en hann er sérstakur að því leiti að notaðir eru afgangar sem ekki var hægt að nýta í annað og heitir hann því REWORKED eða endurunninn.
Kay Bojesen var silfursmiður sem að lærði á verkstæði Georg Jensen í Kaupmannahöfn. Eftir að hafa starfað við greinina í nokkur ár í Þýskalandi og Frakklandi ákvað hann að breyta til og fór að vinna með tré. Hann er í dag einn af allra þekktustu hönnuðum sem Danir hafa alið af sér og þá einkum fyrir tréfígúrur sínar sem margir þekkja. Kay sagði eitt sinn að dýrin sín ættu ekki að líkjast alvöru dýrum, heldur að fá frelsi til að vera þau sjálf og hafa sinn eigin karakteríska persónuleika. Rosendahl keypti framleiðsluréttinn af Kay Bojsen vörunum árið 1990.
Apinn var annar í röðinni af dýrunum sem Kay Boysen smíðaði á eftir hundinum, en í kjölfarið komu björninn og fíllinn.
Hönnun: Kay Bojesen, 1951
Hæð: 9,5 cm
Breidd: 10 cm