Til baka

Múmínálfana kannast flestir við. Þessir skemmtilegu persónur hafa glatt unga sem aldna allt frá árinu 1945, er fyrsta bókin um Múmínaálfana eftir finnska rithöfundinn Tove Jansson kom út. Síðan þá hafa verið gefnar út fleiri bækur, myndabækur, sjónvarpsþættir og kvikmynd með álfunum í aðalhlutverkunum.


Vetrarlínan frá Arabia árið 2021 heitir Snow Moonlight. Í seríunni má sjá Múmínsnáða og vini hans horfa á eftir Snjóhestinum hverfa á brott við sjóndeildarhringinn. Serían er einnig innblásin af bók Tove Jansson, Moominland Midwinter (1957), eins og sumar fyrri seríur, þar sem hinum dásamlega vetri sem Múmínsnáði upplifir í fyrsta sinn er lýst.


Á hverju ári koma út nýjar könnur auk fleiri kanna sem einungis eru framleiddar í takmörkuðu upplagi. Hér er því um skemmtilega söfnunarvöru að ræða.

Arabia, dótturfélag Iittala í Finnlandi, hefur um árabil selt þessar skemmtilegu vörur með myndum af persónum Múmínálfanna.

Serían inniheldur bolla, skálar, smábolla og kaffiskeiðar. 


Rúmmál: 30 cl. 

Múmín bolli - Snow Moonlight

iit11985

4.790 kr.

1

Setja á gjafalista

Um vöruna

Sendingar & skil

Vefkökur

Velkomin í vefverslun Líf&List. Síðan notar vafrakökur (e. Cookies). Með því að halda áfram notkun síðunnar samþykkir þú notkun vafrakaka.