Til baka
Þetta borðstofuborð kemur frá danska framleiðandanum Skovby.
Óstækkað, er borðið hugsað fyrir 6-8 einstaklinga, en með því koma tvær stækkunarplötur sem geymast undir borðplötunni. Stækkunin á þessu borði er svolítið óvenjuleg, en plöturnar brotna saman undir borðið svo hægt sé að stækka það með einföldum og áreynslulausum hætti.
Borðið sjálft er 100x183cm og 74cm á hæð. Hvor stækkunarplata er 46cm og með hverri plötu má koma fyrir tveimur einstaklingum í viðbót við borðið. Alls eru tvær stækkunarplötur undir borðplötunni og komast þá 12 manns við borðið og verður það þá 275cm að lengd.
Þetta tiltekna borð er úr gegnheilli olíuborinni eik, en hægt er að fá borðið í fjölmörgum viðargerðum.
Hafið samband við sölufólk okkar til að fá upplýsingar um fleiri viðargerðir.
Athugið að stækkunarplöturnar eru ávallt spónlagðar.