Til baka
Múmínálfana kannast flestir við. Þessir skemmtilegu persónur hafa glatt unga sem aldna allt frá árinu 1945, er fyrsta bókin um Múmínaálfana eftir finnska rithöfundinn Tove Jansson kom út. Síðan þá hafa verið gefnar út fleiri bækur, myndabækur, sjónvarpsþættir og kvikmynd með álfunum í aðalhlutverkunum.
Á hverju ári koma út nýjar könnur auk fleiri kanna sem einungis eru framleiddar í takmörkuðu upplagi. Hér er því um skemmtilega söfnunarvöru að ræða.
Þetta er í fyrsta skipti sem Galdrakarlinn (Hobgoblin) kemur fram á Múmínvörunum skemmtilegu frá Arabia. Hann kemur einungis fram í einni bók eftir Tove Jansson en hún heitir Pípuhattur galdrakarlsins og var gefin út árið 1948.
Arabia, dótturfélag Iittala í Finnlandi, hefur um árabil selt þessar skemmtilegu vörur með myndum af persónum Múmínálfanna.