Til baka
Stage lampinn var hannaður af Daniel Debiasi og Federico Sandri fyrir danska vörumerkið Normann Copenhagen. Innblásturinn af Stage lampanum eru þessi færanlegu ljós sem notuð eru í kvikmyndaiðnaði og við ljósmyndun.
Lampinn varpar þægilegri birtu í þá átt sem honum er beint. Hægt er að halla höfðinu á lampanum til að ákvarða hversu hátt birtunni er beint.
Stage lampann er hægt að nota leslampa eða til að birta upp dimm rými og setja kósý stemmningu á heimilið þitt.
Kemur í nokkrum litum.
: Hæð: 122cm, L: 41cm, D: 36cm, Snúra: 2m.
Lengd snúru: 2m
Pera: SMD 2835 LED* 11W
Birta: 2800-3200K
*Ekki er hægt að skipta um peru, en líftími hennar er 30.000 klst.