Ritzenhoff

Mjólkurglas - Pangborn
1.990 kr.

Lýsing:

Ritzenhoff eru fyrir löngu orðnir þekktir fyrir glösin sem að svo margir safna. Frá þeim koma einnig þessi hefðbundnu glös, en þau eru sem fyrr úr gleri, fallega myndskreyttu. Þau eru hönnuð sem mjólkurglös, en margar af myndunum á þeim hafa vísun í kýr eða mjólk. Þau er þó vel hægt að nota undir hvaða drykk sem er. Glösin eru vinsæl söfnunarvara, enda koma ný mynstur á hverju ári.

Hönnuður: Dominic Pangborn

Hæð: 200mm
Breidd: 71mm
Rúmmál: 250ml
Útgefið: Vor 2011

Ritzenhoff segir að glasið megi þvo í uppþvottavél, en það fer þó alltaf betur með svona fallega vöru að vaska hana upp í höndunum.

Glasið kemur í vönduðum og fallegum gjafaumbúðum.

Deila:

Veldu fjölda: