Ritzenhoff
Bjórkanna - Gunga
3.590 kr.
Lýsing:
Í München í Þýskalandi hittast í septemberlok á hverju ári milljónir manna og njóta þess að drekka góðan bjór. Þessar hátíðir voru upprunalega haldnar til að klára bjórbirgðir héraðanna áður en að nýtt bruggtímabil gekk í garð. Seinna meir þróuðust þessar samkomur í eina stóra sem um 6-7 milljónir sækja.
Þó að það sé gaman að sötra bjór í útlöndum, þá er það líka góð skemmtun í góðra vina hópi heima í stofu. Ritzenhoff hefur hannað fallegar bjórkönnur sem að gera góðan bjór enn betri.
Hönnuður: Gernot Gunga
Hæð: 268mm
Breidd: 133mm
Rúmmál: Hálfur líter
Útgefið: Vor 2005
Ritzenhoff segir að glasið megi þvo í uppþvottavél, en það fer þó alltaf betur með svona fallega vöru að vaska hana upp í höndunum.
Glasið kemur í vönduðum og fallegum gjafaumbúðum.

