Vinningshafar úr brúðargjafarleik Líf & List árið 2009
    Dregið hefur verið úr brúðargjafaleik Líf & List árið 2009. Þrjú heppin brúðhjón hafa því dottið í lukkupottinn og fá að launum gjafabréf.

    1. vinningur - Gjafabréf að verðmæti kr. 50.000.-
    Sigrún Inga Briem & Kristján Ingi Gunnarsson

    2. vinningur - Gjafabréf að verðmæti kr. 25.000.-
    Guðrún Þóra Gunnarsdóttir & Kári Gunnarsson

    3. vinningur - Gjafabréf að verðmæti kr. 15.000.-
    Sandra Guðrún Harðardóttir & Baldur Ingason

    Þau geta vitjað gjafabréfsins í verslun Líf & List í Smáralind. Við óskum þeim innilega til hamingju með brúðkaupið og sigurinn í brúðargjafaleiknum.

    Glæsileg gjafavöruverslun í Smáralind
    Verslunin Líf & List er glæsileg verslun með borðbúnað, gjafavöru og húsgögn. Verslunin var opnuð í nóvember 2002 á annarri hæð Smáralindar og býður up á úrval af vönduðum matarstellum úr postulíni, kristalsglösum, hnífapörum úr gæðastáli þar sem framleiðsluábyrgð er á vörunum og hentar því sérstaklega þeim sem hyggjast safna borðbúnaði á löngum tíma.

    Í Líf & List er þar að auki hægt að fá gjafabréf fyrir ýmis tilefni auk þess sem verslunin heldur utan um óskalista brúðhjóna og annarra viðskiptavina sem þess óska.

    Fjölbreytnin í matarstellum, glösum og hnífapörum til daglegra nota er einnig mjög mikil og það sama á við um gjafavöruna. Má taka sem dæmi að úrvalið af skálum, blómavösum, myndarömmum og kertastjökum er margþætt og í versluninni er eingöngu um að ræða gæðavöru á góðu verði.

    Heimsþekktir framleiðendur
    Í Líf & List eru í boði vörumerki frá heimsþekktum framleiðendum. Frá Þýskalandi koma matarstell úr úrvals postulíni frá Rosenthal/Hutschenreuter. Vörurnar frá Hutschenreuter hafa áður verið seldar hér á Ísland, en hafa ekki verið boðnar hér um 5 ára skeið, því er hér kærkominn möguleiki fyrir þá sem hafa verið að safna stelli með þessu vörumerki að athuga hvort ekki sé enn hægt að bæta við.

    Nachtmann er einn stærsti framleiðandi kristals í Evrópu og býður verslunin uppá glæsilegt úrval af glösum, karöflum, blómavösum og allskonar kristalsvörum á verði sem kemur þægilega á óvart. Verslunin hefur í úrvali sínu litaðan kristal, sem hefur ekki mikið sést í verslunum hér, en fullyrða má eftir viðtökum að dæma að sala litaðs kristals á eftir að stóraukast enda fellur hann ákaflega vel að þeim hýbýlastíl sem hefur verið áberandi undanfarið hér á landi.

    Frá Frakklandi koma vörur frá mörgum framleiðendum s.s. Guy Degrenne, sem framleiða matarstell úr postulíni, glös, hnífapör og margskonar eldhúsáhöld. Pillivuyt sem framleiða matarstell úr postulíni og hið heimsfræga Limoges postulín á að sjálfsögðu sinn sess í versluninni. Fyrir valinu varð framleiðandinn Medard de Noblat og býður verslunin 6 mismunandi tegundir frá þeim.

    Árið 2006 gekk Líf & List í samstarf við dönsku verslunarkeðjuna Kop & Kande. Slík samvinna hefur opnað versluninni aðgang að stórum hópi skandinavískra framleiðenda á borð við Rosendahl, Holmegaard, Royal Copenhagen, Georg Jensen og ótal marga fleiri. Á vefsíðunni má finna lista með okkar stærstu birgjum.

    VA Arkitektar með Hróbjart Hróbjartsson arkitekt í broddi fylkingar teiknuðu verslunina, en rafhönnunin var í höndum Guðjóns B. Sigurðssonar hjá Rafteikningu ehf. Var ákveðið að nota nýja gerð lýsingar sem byggir á ljósleiðaratækni og fellur lýsingin ákaflega vel að þeirri vörur sem verslunin selur.