Skilmálar
Sending og kostnaður:
Vörurnar er hægt að sækja í verslun okkar í Smáralind en verða annars sendar með pósti ef ekki koma fyrirmæli um annað. Sendingakostnaður er sá sami um allt land, skv. gjaldskrá Póstsins fyrir höfuðborgarsvæðið. Allar vörur eru sendar næsta dag eftir móttöku pöntunar, þó ekki á laugardögum og sunnudögum. Athugið að allar pantanir að upphæð kr. 12.000.- eða meira eru sendar frítt til viðtakanda.
Öllum pöntunum er dreift af Póstinum og gilda afhendingar – og flutningsskilmálar Póstsins um afhendingu vörunnar. Líf og List ber enga ábyrg á skemmdum sem kunna að verða á vörum í flutningi.
Greiðsla:
Mögulegt er að greiða fyrir vörukaup með kortum (Mastercard og Visa) Greiðslan fer fram í gegnum örugga afgreiðslu Valitor ehf.
Skilafrestur – skiptiréttur:
Hægt er að skila og skipta öllum vörum svo lengi sem þær eru ennþá í vöruúrvali okkar, en því aðeins ef varan er ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Kaupandi greiðir sjálfur flutningskostnað fyrir vörur sem er skipt/skilað. Ekki er tekið við skilavörum séu þær sendar með póstkröfu.
Ábyrgð:
Ábyrgðarskilmálar eru samkvæmt íslenskum neytendalögum.
