Riedel er ekki gamalt fyrirtæki, var stofnað í Austurríki fyrir rúmlega 50 árum. Claus Riedel var fyrstur allra til að hanna mismunandi gerðir vínglasa með það í huga að bragð og mismunandi eiginleikar víns nytu sín til fulls. Síðan þá hafa mörg fyrirtæki fylgt í fótspor hans en það er óumdeilt að Riedel heldur enn forustunni. Velgengni þeirra er mikið á alþjóðamarkaði og í dag eiga þeir mörg stór fyrirtæki, þar með talið Nachtmann sem er eitt af þeim vörumerkjum sem við seljum.

Grind
Lista