Múmínálfana kannast flestir við. Þessir skemmtilegu álfar hafa glatt unga sem aldna allt frá árinu 1945, er fyrsta bókin um Múmínaálfana eftir finnska rithöfundinn Tove Jansson kom út. Síðan þá hafa verið gefnar út fleiri bækur, myndabækur, sjónvarpsþættir og jafnvel kvikmynd með álfunum í aðalhlutverkunum. Arabia, dótturfélag Iittala í Finnlandi hefur um árabil framleitt krúsir og skálar með myndum af persónum Múmínálfanna. Þessar vörur eru nú fáanlegar í Líf & List.

Grind
Lista