Iittala glerverkstæðið var stofnað 1881 í Iittala í Finnlandi. Í dag er fyrirtækið í eigu Fiskars sem var stofnað 1649 og er örugglega með elstu fyrirtækjum, orðið 360 ára gamalt. Margir þekktir hönnuðir hafa hannað fyrir Iittla í gegn um árin en þekktastur er Alvar Aalto. Iittala er framsækið fyrirtæki og slagorðin þeirra „Less is more“ og „Against throwawayism“ boða að betra sé að kaupa minna og hafa það fallegt og með notagildi en kaupa mikið og vera sífellt að henda hlutum.

Grind
Lista