|
Forðast skal að stilla húsgögnum með leðuráklæði upp í mikilli sól eða hita. Slíkt leiðir til þess að leðrið þurrkast upp og leiðir til ofþornunar og í kjölfarið upplitunar.
Aldrei skal nota sápur með upplausnar- efnum á leður. Bensín, þynnir, skó- áburður, bón eða húsgagnaáburður eru öll efni með upplausnarefnum í og búast má við því að þau skaði leðrið ef þau eru notuð.
Leggið ykkur fram við að halda leðrinu hreinu.
Við þvott á leðri er mælt með notkun á þar til gerðum leðurhreinsiefnum, sem má meðal annars fá í verslun okkar. Sé slíkt ekki fyrir hendi þá má prófa að nota volgt vatn með sápuspæni í.
Nauðsynlegt er að bera næringu á leðrið 2-4 sinnum á ári. Það veltur þó allt aftir því hversu mikið settið er notað.
Rétt umhirða og góð umgengni heldur leðrinu fallegu, mjúku og notalegu og lengir líftíma sófasettsins um mörg ár. |