Iittala
Kastehelmi Diskur - 31,5cm Glær
7.650 kr.
Lýsing:
Fallegur 31,5cm diskur úr Kastehelmi vörulínunni frá Iittala. Getur notast bæði sem kökudiskur, stór matardiskur eða undirdiskur.
Einnig eru fáanlegir diskar í öðrum stærðum og litlar skálar í sömu vörulínu. Kastehelmi vörulínan kemur í þremur útfærslum: glær, eplagræn og ljósblá.
Kastehelmi glerlínan, sem Oiva Toikka hannaði árið 1964, er ekki einungis falleg vörulína, heldur einnig skemmtileg
lausn á þekktu vandamáli í glervöruframleiðslu. Það getur neflilega verið hvimleitt vandamál að losna við för í glerinu,
sem koma þegar að vélar pressa það saman. En Toikka fann skemmtilega lausn á þessu vandamáli með því að setja glerdropa
yfir förin og út kom þessi skemmtilega hönnun.
Iittala hefur nú sett þess vörulínu eftir Toikka aftur í framleiðslu, til að fagna því að 50 ár eru liðin síðan að fyrirtækið
hönnuðurinn tóku höndum saman í framleiðslu á fyrsta flokks hönnunarvöru.
Vissir þú að orðið Kastehelmi er komið úr finnsku og þýðir 'Daggardropi'?

