Eva Solo
Mortel - Grænt
6.540 kr.
Lýsing:
Þetta skemmtilega og fallega mortel er nýjung úr smiðju Eva Solo. Mortelið er gert úr grófu postulíni og er með hrufum í botninum svo að kryddjurtirnar merjist betur í botninum. Þá er mortelið með sílikonbotni, og rennur því ekki til á borðinu. Því er auðvelt að vinna með það og það rispar ekki borðplötur.
Þá er stauturinn með sílíkonhandfangi og er því auðvelt að halda utan um hann án þess að hann renni til í höndunum á manni. Stauturinn passar ofan í mortelskálina og því fer lítið fyrir mortelinu þegar það er ekki í notkun.

