Raða eftir:

Fjöldi vara á síðu:

Birta sem: Grind Lista

Það getur verið vandasamt verk að velja réttu fyrirtækjagjöfina

Gjöfunum er ætlað að gleðja starfsmenn, viðskiptafélaga og aðra tengda.

Við hjá Líf & List höfum mikla þekkingu og reynslu á þessu sviði og munum leggja okkur fram um að koma með hugmyndaríkar tillögur svo þú getir fundið réttu gjöfina fyrir þitt fyrirtæki.

Eins og sjá má á síðunni, þá seljum við vörur frá flestum stóru hönnuðunum í heimilisvöru í Danmörku - auk þess sem við höfum í úrvali okkar ýmislegt spennandi sem kemur á óvart.

Þess fyrir utan bjóðum við einnig upp á fría innpökkun í fallegan jólapappír auk heimsendingar á starfsstöð viðskiptavinar. Þá ber einnig að nefna að fyrirtækjagjöfum er hægt að skipta í verslun okkar í Smáralind.

Frestur til að leggja inn pantanir er 10. nóvember nk. og verða þær afhentar kaupanda í síðasta lagi þann 18. desember - nema ef um annað er samið.

Til að fá frekari upplýsingar um fyrirtækjagjafir má senda tölvupóst á netfangið jho(hja)lifoglist.is